Allir einstaklingar 18 ára og eldri með lögheimili á Íslandi hafa fengið Ferðagjöf að andvirði 5.000 kr. Gjöfin er liður í því að styðja við bakið á íslenskri ferðaþjónustu í kjölfar kórónufaraldurs (Covid-19) og efla þannig íslenska ferðaþjónustu sem og hvetja landsmenn til að eiga góðar stundir á ferðalagi víðsvegar um landið.
Hvar nálgast ég ferðagjöfina mína?
Fyrst þarf að sækja Ferðagjöfina með innskráningu á island.is. Til að nýta gjöfina er síðan smáforritið Ferðagjöf sótt í App Store eða Play Store og kóði undir strikamerki nýttur við bókun á ferðum. Einnig er hægt að nýta Ferðagjöfina beint inni á Ísland.is fyrir þá sem ekki eru með snjallsíma. Þá þarf að hafa samband við okkur í tölvupósti og við aðstoðum þig við að klára bókun.
Hvernig nýti ég ferðgjöfina mína hjá Mountaineers of Iceland?
Þú einfaldlega velur þá ferð á, vefnum okkar mountaineers.is, sem þú hefur áhuga á að taka þátt í. Þá velur þú fjölda farþega og dagsetningu.
Þegar allt hefur verið valið eftir þínum óskum velur þú „Checkout“
Sé afsláttur í boði á þeirri ferð sem þú hefur valið þá slærð þú inn „Promo Code“ og smellir á „Apply“.
Til þess að nýta svo Ferðagjöfina smellir þú á Gift Card.
Í Reitnum „Enter gift card code“ þarf að setja inn kóða sem fæst í smáforritinu Ferðagjöf. Í smáforritinu smellir þú á nýta gjöf og þá kemur upp strikamerki. Undir strikamerkinu er númer sem þú slærð inn í reitinn „Enter gift card code“ á vefnum okkar.
Eftirstöðvar, ef einhverjar eru, er hægt að greiða með greiðslukorti þegar haldið er áfram með bókunarferlið.
Við hlökkum til þess að taka á móti ykkur í sumar og hvetjum alla til þess að nýta Ferðagjöfina sína og styðja íslenska ferðaþjónustu.